Körfuboltaveisla í TM höllinni
Fimmtudagskvöldið 1. október verður sannkölluð körfuboltaveisla í TM höllinni þar sem leikið verður til undanúrslita í fyrirætkjabikar kvenna. Keflavík hefur veisluhöldin kl 18:15 en þá leika þær stúlkur gegn öflugu liði Vals. Kl 20:30 mæta svo Grindavíkurkonur Haukum. Sigurvegararnir mætast svo í úrslitum á laugardaginn en þá verður leikið í Iðunni á Selfossi.
Við hvetjum auðvitað alla til að gera sér ferð í TM höllina á morgun og styðja við stelpurnar okkar en margar þeirra eru að stíga sín fyrstu skref með meistaraflokki.