KR mætir í Sláturhúsið í kvöld
Það eru margir stuðningsmenn Keflavíkur sem bíða spenntir eftir leiknum á móti KR í kvöld. Í fyrsta lagi eru komnar 2 vikur síðan Keflavík spilaði á heimavelli síðast. Í öðru lagi hafa leikir Keflavíkur og KR alltaf verið skemmtilegir, mikil barátta og ekkert gefið eftir.
KR er sem stendur 7 sæti Intersportdeildar með 16 stig og í mikilli baráttu um sæti í úrslitum. Keflavík og KR mætust í DHL höllinni 12 nov. og endaði sá leikur 90-88 fyrir KR. Tölfræði úr þeim leik hér
.
Mynd úr leik Keflavíkur í Intersportdeildinni fyrr í vetur.