KR-stúlkur lagðar að velli
Keflavíkurstúlkur lögðu KR-stúlkur að velli í gærkvöldi, en leikið var í Toyota Höllinni. Lokatölur leiksins voru 79-75.
Keflavík komst yfir snemma leiks, en KR tók ágætis rispu þar sem þær náðu forystu. Það varði þó ekki lengi og voru þær að elta það sem eftir lifði leiks. Sterk vörn hjá Keflavík í fyrri hálfleik, gerði það að verkum að KR náði aldrei að ógna forystu þeirra almennilega. Einnig var kaninn þeirra með 0 stig í hálfleik.
Hjá Keflavík var Jacqueline Adamshick með 34 stig og 15 fráköst. Birna skoraði 18 og Bryndís 14.
Hjá KR var Margrét Kara Sturludóttir með 21 stig og Chezny Paige Morris skoraði 19.