Krakkarnir kunnu vel að meta boð Landsbankans – yfir 500 manns í húsinu
Eins og við greindum frá í gær þá bauð Landsbankinn öllum skólabörnum bæjarins á leiki gærkvöldsins og það sem meira var, börnin máttu taka foreldrana með að kostnaðarlausu. Greinilegt var að börnin kunnu vel að meta boðið og var afar vel mætt, sérstaklega á seinni leikinn, yfir 500 manns í húsinu, en samkvæmt reynslu hefði annars mátt reikna með 250-300 manns. Við vonum bara að allir hafi skemmt sér vel og að börnin og foreldrarnir mæti á sem flesta leiki af þeim sem eftir eru. Það er nefnilega gömul saga og ný að leikirnir verða miklu skemmtilegri þegar húsið er fullt.