Fréttir

Kristín S. Þórarinsdóttir ráðin rekstrarstjóri körfuknattleiksdeildar Keflavíkur
Körfubolti | 18. júní 2025

Kristín S. Þórarinsdóttir ráðin rekstrarstjóri körfuknattleiksdeildar Keflavíkur

Kristín S. Þórarinsdóttir ráðin rekstrarstjóri körfuknattleiksdeildar Keflavíkur

Kristín S. Þórarinsdóttir hefur verið ráðin rekstrarstjóri körfuknattleiksdeildar Keflavíkur og mun hún hefja störf í ágúst. Kristín er með BA-próf í samskiptum með áherslu á almannatengsl og einnig með meistaragráðu í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík.

Kristín er sannur Keflvíkingur og þekkir körfuknattleiksdeildina afar vel. Hún æfði körfubolta með yngri flokkum félagsins á sínum yngri árum og lék síðar með meistaraflokki kvenna.

Það er mikil tilhlökkun innan félagsins að fá Kristínu til starfa og hlökkum við til samstarfsins fram undan.