Fréttir

Körfubolti | 3. desember 2003

Kristinn Óskarsson dómari í Evrópukeppni

Það er ekki bara meistaraflokkur Keflavíkur sem tekur þátt í Evrópukeppni þetta árið. Okkar helsti dómari, Kristinn Óskarsson, sem einnig er duglegur þjálfari hjá yngri flokkum félagsins, hefur verið beðinn um að dæma á alþjóðlegum vettvangi. Þetta er ávallt heiður fyrir dómara og óskar Heimasíðan Kristni til hamingju með að vera í hópi þeirra sem treyst er fyrir svona mikilvægum verkefnum.

Þetta er önnur tilnefning Kristins frá FIBA-Europe í vetur, en þann 20. desember dæmir Kristinn leik Paris Basket Racing (PSG) og Anwil frá Póllandi í B-riðli meistaradeildarinnar (FIBA Europe Leagie), en leikurinn fer fram í París. Anwil er sem stendur í efsta sæti riðilsins, en París í því neðsta. Daginn eftir þann 21. desember dæmir Kristinn leik USO Basket gegn Kozachka - Zalk frá Úkraínu í milliriðli E í Bikarkeppni kvenna í Mondeville. Meðdómari Kristins í leikjunum tveimur er portúgalskur og heitir José Araujo.