Kvennalið Keflavíkur getur orðið Íslandsmeistari með sigri í næsta leik!
Sumir segja að það sé erfitt að leika þegar bikarinn stóri blasir við, þegar hugurinn fer um víðan völl og erfitt er að halda einbeitingunni, því tilhlökkunin um að vinna þann Stóra sé of mikil. En þetta krefjandi verkefni blasir við stúlkunum okkar á morgun þegar Grindjánar koma í heimsókn. Keflavík leiðir 2-0 og þarf einn sigur til viðbótar til að hampa þeim Stóra þriðja árið í röð. Stúlkurnar hafa til þess þrjá leiki, sá fyrsti er á morgun og víst er að þær munu leggja sig fram við að "klára dæmið" hið fyrsta.
Henning Henningsson hefur lýst því yfir að Rita Williams sé langbesti kvennakaninn sem komið hafi til Íslands og víst er að þar fer verðugur andstæðingur. Grindavík byggir leik sinn nánast alfarið á henni og gerir það vörn okkar aðeins auðveldara um vik, þar sem fókusinn er á hana, þegar hún hefur knöttinn þá gerast hlutirnir. Hvort Rita sé sú besta skal ósagt látið hér, en hún Alex okkar er ekki mikið lakari, þótt lágvaxin sé. Að minnsta kosti var hún sigurvegarinn í einvígi þeirra í síðasta leik, lék eins og sú sem valdið hefur, sérstaklega í framlengingunni. Það hefur vakið athygli hve kraftmikil hún er, hversu hátt hún getur hoppað, og allra helst, hve öflug hún er í lok leikja.
En Keflavík er miklu meira en bara Kaninn. Sú elsta (Anna M) og sú yngsta (Bryndís G) hafa ásamt íþróttamanni Reykjanesbæjar (Birnu V) verið máttarstólpar liðsins að undanförnu, ásamt vöskum hópi góðra spilara sem allar geta skorað, leikið vörn og spilað fínan bolta. Grindavík hefur einnig margar góðar stelpur innanborðs, en samt stóla þær meira á að Rita sjái um hlutina.
Leikurinn á morgun verður eflaust æsispennandi. Grindavík hefur erfitt verkefni fyrir höndum, því þær þurfa innst inni að trúa því að þær geti unnið þrjá leiki í röð gegn Kef. Þær mega ekki við því að eiga einn slakan leik. Því koma þær eflaust einbeittar til leiks, en í slíkri aðstöðu getur oft brugðið til beggja vona. Þær geta náð upp svaka stemmingu og leikið leik lífs síns, en einnig geta þær brotnað við mótlæti og gefist upp.
Okkar stúlkur hafa pálmann í höndunum. Með solid varnarleik og skynsemi í hraðupphlaupum ættu þær að halda sér inni í leiknum, sama á hverju dynur. Þær þurfa ekki að ná yfirburðum strax, heldur geta leyft sér að finna taktinn, því liðsheildin er sterk, sterkari en hjá Grindavík, og ef þær komast á sporið, þá verður ekki við þær ráðið, það er fullreynt.
Við óskum stúlkunum alls hins besta í baráttunni á morgun og vonum að sjálfsögðu eftir enn einum Íslandsmeistaratitlinum í hús....
ÁFRAM KEFLAVÍK!!!