Fréttir

Karfa: Konur | 1. febrúar 2011

Kvennalið Keflavíkur styrkir sig

Kvennalið Keflavíkur hefur fengið liðstyrk fyrir komandi átök í Iceland Express deild kvenna. Stúlkan sem um ræðir heitir Marina Caran og kemur frá Serbíu. Marina er fædd 1984 og er 180cm á hæð. Hún spilaði m.a. með liði Keltern í Þýskalandi, en það er sama lið og Jacqueline Adamshick spilaði fyrir. Þessi styrking á kvennaliði Keflavíkur er liður í því að ná settum markmiðum á tímabilinu.

Þess ber að geta að það voru velunnarar kvennakörfunnar í Keflavík sem tóku sig saman og stóðu að fjármögnun leikmannsins.

 


Marina Caran