Kvennaliðið steinlá gegn ÍS
19. mars 2005 á eftir að fara í sögubækurnar sem einn slakasti körfuboltadagur seinni ára hjá Keflavík. Strákarnir töpuðu gegn ÍR eftir afar slakan leik og stúlkurnar virðast einnig hafa farið öfugt framúr í morgun því ekki stóð steinn yfir steini í byrjun leiksins gegn ÍS. Þær töpuðu stórt 74-55 og nú er oddaleikur framundan sem sker úr um það hvort liðið kemst í úrslitin. Fulltrúi heimasíðunnar hafði ekki tök á því að sækja leikinn í dag og fær því lánaða grein vina okkar í Víkurfréttum og fylgir hún hér:
Keflvíkingar byrjuðu skelfilega og skoruðu aðeins þrjú stig í fyrsta leikhluta. Aðeins eitt skota af nítján rataði ofan í leikhlutanum. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 21-3. Keflvíkingar náðu þó aðeins að saxa á forskot Stúdína og staðan í hálfleik 34-19.
Í seinni hálfleik gerðu þær þó áhlaup á Stúdínur og náðu að vinna forskot þeirra í 9 stig en Stúdínur náðu alltaf að hrista þær af sér. Keflvíkingar voru í eltingarleik allan leikinn og staðan eftir þriðja leikhluta, 53-41. En forskot Stúdína reyndist of mikið og þær uppskáru auðveldan sigur 75-54.
Anna María Sveinsdóttir og Alexandria Stewart sáu um megnið af stigaskorun Keflvíkinga. Stewart var með 24 stig og 11 fráköst og Anna María var með 12 stig og 9 fráköst. María Erlingsdóttir og Bryndís Guðmundsdóttir voru með 6 stig hvorar
Hjá Ís var Signý Hermannsdóttir atkvæðamest með 23 stig og 16 fráköst,auk þess sem hún varði 8 skot!. Þórunn Bjarnadóttir var með 16 stig og Alda Jónsdóttir með 14.
Sverrir Sverrisson, þjálfari Keflvíkinga hafði þetta að segja í leikslok: „Slæm byrjun varð okkur að falli í dag og við skorum bara þrjú stig í fyrsta leikhluta, við lentum það mikið undir að við vorum að elta allan leikinn og þegar við náðum einhverju áhlaupi þá var pústið búið hjá okkur og ÍS náði að auka það strax aftur. Það þarf að byrja leikinn á fullu eftir að flautað er á, annars er það of seint, en staðan er bara 1-1 og það er leikurinn á þriðjudaginn sem ræður framhaldinu.”
Þessi dagur er liðinn sem betur fer....:) og nú vonum við að liðin okkar finni taktinn sem fyrst aftur.
ÁFRAM KEFLAVÍK!