Kvennaliðið vann Hauka örugglega eftir rysjótta byrjun
Það var jafnræði með Keflavík og Haukum í byrjun leiksins í kvöld og staðan jöfn eftir fyrsta leikhluta. En með ágætri pressuvörn og glimrandi frammistöðu Resheu náði Keflavík 10 stiga forystu fyrir hálfleikinn. Í byrjun seinni hálfleiks völtuðu heimasæturnar síðan yfir gestina og náðu rúmlega tuttugu stiga forskoti sem þær sigldu rólega heim í síðasta leikhlutanum.
Reshea Bristol er greinilega hörku leikmaður bæði í vörn og sókn. Reshea skoraði 23 stig og gaf 7 stoðsendingar. Hún er fljót og útsjónarsöm og kann þá list að gefa skemmtilegar sendingar. Með hana í pressuvörninni getur liðið virkað sterkt. Bára er einnig afar öflug í vörninni. Þó var greinilega um óþolinmæði að ræða í varnarleiknum því ef Haukastúlkurnar komust í gegnum fyrstu gildruna var leiðin greið að körfunni.
Bryndís var frábær í fráköstunum (17 fráköst, 12 stig) og Rannveig var næstum búin að ná þrefaldri tvennu (12 stig, 8 stoðs, 9 stolnir boltar) Anna María (16 st, 11 frák) stóð sig einnig vel eins og allt liðið, þó verður að segjast að byrjunin var slök. Keflavíkurliðið er greinilega sterkt og ungu stúlkurnar virðast eiga auðvelt með að taka á sig aukna ábyrgð.
Næsti leikur stúlknanna er þriðjudaginn 19. okt. gegn ÍS, en það verður sannkallaður toppslagur.