Kvennaliðið vann Hörsholm í gær
Stúlkurnar okkar náðu öðrum góðum leik í Köben í gærkveldi þegar þær lögðu Hörsholm að vell, en það er eitt sterkasta lið Danmerkur. Sverrir Þór var afar ánægður með leikinn. María Ben lék allra best og skoraði 24 stig og Anna María gerði 19.
Í morgun fóru þær í lestarferð að mótsstað en á eftir hefst hraðmótið sem þær keppá ásamt SISU og Hörsholm frá Danmörku og einu sænsku félagi. Við munum birta fréttir af ferðinni.