Fréttir

Körfubolti | 8. nóvember 2003

Kynning á Toulon frá Frakklandi – næstu andstæðingum Keflavíkur í Evrópu

Toulon hefur lengst af leikið í PRO B deildinn, en fyrir þremur árum komst félagið upp í PRO A og hefur fest sig í sessi þar með góðri spilamennsku og lengst af verið um miðja deild. Sem stendur, að 6 umferðum loknum, er liðið í 11. sæti, næst fyrir ofan Vichy, þar sem Pavel Ermolinski leikur, með tvo sigra og fjögur töp.

 

Toulon hefur um 200 milljónir króna til að reka sína deild og er því um 15 sinnum “stærra” félag en Keflavík, ef svo má að orði komast. Það kom verulega á óvart að Toulon tapaði fyrsta leik sínum í Evrópukeppninni gegn CAB Madeira á dögunum, því fyrirfram voru Frakkarnir álitnir sterkasta liðið í B-riðlinum.

 

Toulon leikur heimaleiki sína í Espace 3000 höllinni sem tekur um 2500 áhorfendur í sæti. Stundum eru leikir færðir í aðra höll, Zenith Omega, en sú tekur um 5500 áhorfendur. Meðalfjöldi áhorfenda á heimaleiki í fyrra var rétt um 2000, þannig að búast má við góðri stemmingu á fimmtudaginn.

 

Helstu leikmenn Toulon liðsins eru eftirtaldir:

  • Jason Rowe, bandar. bakvörður frá Loyola háskólanum, 25 ára, 1,76 m, 15 stig að meðaltali, góð skytta, 6 stoðs.
  • Floyd Miller, miðherji frá Vincent, 30 ára, frá Bowling Green háskólanum, 2,00 m, 13 stig og 6 frák.
  • Nedeljko Asceric, framherji frá Serbíu, 38 ára,  1,98m, 11 stig, góð 3ja stiga skytta, lék ekki með gegn Madeira
  • Wade Gugino, bandar. miðherji, 33 ára, 2,06, 11 stig og 5,5 fráköst, lék ekki með gegn Madeira
  • Laurent Legname, franskur bakvörður, 26 ára, 1,85m, 6 stig að meðaltali, skoraði 27 stig gegn Madeira, hitti úr 8 3ja af 18 tilraunum
  • Franck Bouteille, framskur framherji, 32ja ára, 2,00m, 9,5 stig, 4,5 frák, skoraði 13 stig gegn Madeira á dögunum

 

Ljóst er að leikmönnum Keflavíkurliðsins býður erfitt verkefni sem gaman verður að takst á við . . .

 

Hér má lesa stutta lýsingu á frönsku PRO A atvinnumannadeildinni.