Kynning og ljósashow
Á leiknum í kvöld mun stuðningsmannasveitin vera á sýnum stað eins og öllum alvöru leikjum. Meðlimum er margt til lista lagt, til dæmis að syngja baráttusöngva til að hvetja liðið áfram. Þeir hafa líka fengið fólk með sér í að hvetja liðið áfram og meira segja fínar frúr úr vesturbænum hafa tapað sér í látunum. Nú ætla strákarnir að bæta um betur og sjá um kynningu á leiknum eins og þeim er einum lagið og vera með heimatilbúið ljósashow. Þetta er eitthvað sem enginn getur látið fram hjá sér fara og ekki víst að verði endurtekið. Nú er bara að mæta tímalega á staðinn til að missa ekki að neinu. En eru til nokkrir happadrættismiðar sem gildir líka sem aðgöngu miði á leikinn. Miðinn kostar aðeins 1500 krónur og er hægt að nálgast hann hjá strákunum, stjórnarmönum, Skóbúðinni og fleirri stöðum. Við styðjum Keflavík lalalala, við styðjum Keflavík lalalalalalal, við styðjum Keflavík lalalala og við munum vinna þenna leik.