Landsleikur við Belgíu í Keflavík á morgun, föstudag, kl. 21 - Ísland tapaði fyrsta leiknum með 10 stiga mun í Borgarnesi fyrr í kvöld
Haldinn var vináttulandsleikur milli Íslands og Belgíu í Borgarnesi í kvöld. Leikurinn markaði tímamót þar um slóðir þar sem vígt var nýtt viðargólf sem er skemmtilegt að því leyti að lukkudýr þeira Skallagrímsmanna er teiknað á miðju gólfsins. Sérlega skemmtilegt framtak það.
En að leiknum. Ísland byrjaði illa og Belgarnir náðu mest 18 stiga forskoti í fyrri hálfleik. Vörnin var slök hjá landsliðinu og menn virtust ragir við stóra gestina. Í seinni hálfleik átti Arnar Freyr frábæra byrjun og leiddi landsliðið á góðum kafla þar sem munurinn minnkaði niður í fimm stig, 56-61. Eftir það skiptust liðin á körfum og í lokin var munurinn 10 stig 78-88 fyrir Belgíu. Sigurður landsliðsþjálfari sagðist hafa séð ágæta kafla í leiknum, sérstaklega var hann sáttur við varnartilburði, þó þeir hafi verið köflóttir. Arnar var góður og Jakob Sigurðarson stóð sig með prýði, sem og Friðrik Stefánsson sem lék mjög sterka vörn unir körfunum. Leikurinn var skemmtilegur á að horfa og vel mætt á pallana í Borgarnesi.
Næsti leikur verður í Keflavík á morgun kl. 21. Gaman verður að sjá hvort Íslendingarnir nái betri byrjun, því þeir þurfa að fara í leiki sem þessa grimmir og ákveðnir. Sigurður þjálfari telur að Ísland eigi prýðilega möguleika á sigri á morgun.