Fréttir

Körfubolti | 7. ágúst 2004

Landsleikur við Pólland í Keflavík á morgun, sunnudag, kl. 20.00

Þriðji og síðasti leikur karlalandsliðs Íslands gegn Póllandi verður háður í íþróttahúsinu að Sunnubraut - "Sláturhúsinu" - og hefst kl. 20. Þetta passar nokkuð vel við dagskrána í fótboltanum því kl. 18 leika Keflvíkingar við Fylki. Tilvalið að skella sér á fjörugan landsleik í körfunni eftir góðan leik gegn Fylki í fótboltanum.´

Leikirnir tveir sem búnir eru, hafa verið mjög fjörugir, og mikill hiti er meðal liðsmanna. Pólverjar eru undir mikilli pressu því væntingar heima fyrir eru miklar. Gert var ráð fyrir að þeir myndu koma til Íslands og hirða hér þrjá létta sigra, en önnur er raunin. Fyrsta leikinn unnu reyndar Pólverjarnir en Ísland sneri taflinu við í dag á Stykkishólmi og vann leik nr. 2.

Því má búast við hörkuleik á morgun!