Fréttir

Körfubolti | 23. desember 2003

Laugardaginn 27. des. kl. 13 verður tilkynnt um val á körfuboltamanni og íþróttamanni ársins 2003 hjá Keflavík

Íþrótta- og ungmennafélagið Keflavík mun næsta laugardag, þann 27. des., kl. 13.00 halda hóf í félagsheimilinu að Hringbraut 108. Þangað er meðlimum deilda boðið í stutt samsæti þar sem gert verður grein fyrir kjöri á íþróttamanni félagsins árið 2003. Auk þess verður kunngjört val á íþróttamanni einstakra deilda, þar með talið val á körfuboltamanni ársins 2003. Heimasíðan vill hvetja meðlimi, leikmenn, stjórnarmenn og aðra aðstandendur til að mæta á Hringbrautina og fylgjast með vali þessu.