Fréttir

Karfa: Hitt og Þetta | 12. desember 2010

Lazar maður Stjörnuleiksins

Okkar maður Lazar Trifunovic var valin maður leiksins í Stjörnuleik KKÍ sem fór fram í gær. Lazar skoraði 28 stig, tók 8 fráköst og gaf 7 stoðsendingar í 130-128 sigri Landsbyggðarinnar.

Guðjón Skúlason og Jón Kr. Gíslason voru fulltrúar Keflvíkinga í Celeb leiknum, en þar mættust eldri leikmenn landsliðsins gegn þekktum einstaklingum á Íslandi. Jón Kr. skoraði 12 stig, en Guðjón skoraði 3. Jón Kr. skoraði öll sín stig úr 3ja stiga skoti og var með 4/7 nýtingu. Guðjón var hins vegar aðeins kaldari og skoraði 1/6 í 3ja.

 


Lazar sáttur eftir leik með Hannesi, formanni KKÍ.