Lazar spilar með Keflavík gegn KR á morgun
Þær gleðifregnir bárust Keflvíkingum í dag að Lazar Trifunovic er kominn með leyfi til þess að spila með liðinu gegn KR á morgun. Keflvíkingar verða því með báða sína útlendinga á vellinum og má búast við hörkuslag. Leikurinn fer fram í Toyota Höllinni og hefst klukkan 19:15. Allir stuðningsmenn eru hvattir til að mæta og styðja við bakið á strákunum, en þeir þurfa virkilega á því að halda núna. Veglegar veitingar verða svo í boði fyrir stuðningsmannaklúbb Keflavíkur í hálfleik.
Áfram Keflavík!
Lazar Trifunovic