Leikskólahópur - Körfuknattleiksdeild Keflavíkur
Þann 10. október næstkomandi mun hefjast að nýju hið vinsæla 8 vikna körfuboltanámskeið fyrir börn fædd 2015-2016.
Lögð er áhersla á skemmtilega hreyfingu og góðar æfingar í boltatækni.
Æft er á laugardögum kl 09:00-09:50 í Íþróttahúsinu við Sunnubraut. Þjálfari á námskeiðinu er Þröstur Leó Jóhannsson.
Skráning fer fram í gegnum Nóra skráningakerfið og er gjald fyrir námskeiðið 7.500 kr.
Hlökkum til að sjá sem flesta í salnum, við tökum vel á móti öllum.
Barna og Unglingaráð Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur