Fréttir

Karfa: Karlar | 13. apríl 2010

Leikur 4 í kvöld í Ljónagryfjunni

Keflvíkingar mæta í kisukassann í kvöld og mæta þar heimaliði Njarðvíkur í 4. leik liðanna í 4-liða úrslitum Iceland Express deildarinnar. Keflvíkingar geta með sigri tryggt sér sæti í úrslitarimmunni, en ef Njarðvíkingar ná að landa sigri; þá þarf 5. leikurinn að eiga sér stað í Keflavík. Gárungarnir búast við hörkuleik þar sem hvorugt liðið mun gefa tommu eftir ef að þau spila með hausinn og skrokkinn í lagi.

Allir hvattir til að mæta í rauðu og styðja við bakið á Keflavíkurstrákunum!

Áfram Keflavík!