Fréttir

Körfubolti | 3. febrúar 2004

Leikur í boði LÝSINGAR: eitt 3ja stiga skot getur gefið 100 þús. kr. í hálfleik í Bikarnum

Með því að smella á auglýsinguna á forsíðunni frá Lýsingu geta netverjar skráð sig til þátttöku í spurninga- og 3ja stiga leik Lýsingar. Aðeins þarf að svara einni laufléttri spurningu um starfsemi Lýsingar (smá ábending: Lýsing er ekki í jóla- eða körfuboltabransanum) til að komast í pottinn. Síðan verða dregnir nokkrir vinningshafar úr pottinum. 13 þeirra frá frímiða á leikinn og Lýsingarbol í verðlaun, en tveimur verður boðið að reyna 3ja stiga skot í hálfleik í Bikarúrslitum karla á laugardaginn. Og þá verður til mikils að vinna, því með því að hitta úr skotinu fær hinn heppni eða sú heppna 100 þúsund kr. í verðlaun. Frábært framtak hjá Lýsingu og um að gera fyrir Keflvíkinga að vera með!!!