Leikur kattarins að músinni þegar Keflavíkurstúlkur unnu Grindavík 83-41 í undanúrslitum Hópbílakeppninnar
Menn trúðu vart sínum eigin augum í Laugardalshöllinni í dag þegar Keflavík mætti Grindavík í undanúrslitum í Hópbílakeppni kvenna. Yfirburðir okkar stúlkna voru frá upphafi gríðarlegir og margra klassa munur á liðunum í dag. Eftir fyrsta leikhluta var staðan 24-5 (!) og ljóst í hvað stefndi. Annar og þriðji leikhlutar buðu upp á meira af því sama og eftir 30 mín. leik var munurinn 72-23. Í loking slökuðu sterkar Keflavíkurstúlkur aðeins á klónni og munurinn minnkaði örlítið, en var í lokin 42 stig, 83-41.
Birna Valgarðsdóttir fór á kostum og Bryndís Guðmundsdóttir átti einnig stórleik. Þær tvær skoruðu samtals 51 stig (Birna 32 og Bryndís 19). Annars lék allt liðið vel og sérstaklega var varnarleikurinn grimmur. Grindvíkingar komust ekkert áleiðis og einkenndist leikur þeirra af ráðaleysi og vonleysi. Menn áttu kannski flestir von á sigri Keflavíkur, en fáir höfðu líklega reiknað með slíkum yfirburðum.
Næsta laugardag mætir Keflavík ÍS í úrslitum, en Stúdínum sigruðu Hauka í hinum leiknum, 77-70. Sá leikur verður varla svona ójafn, þó segja verði að ef okkar stúlkur halda þessu formi, þá verður erfitt fyrir ÍS að sækja sigur.
Til hamingju með þetta stúlkur, og nú er bara að einbeita sér að því að mæta með sömu einbeitingu í úrslitaleikinn.
Við notum einnig tækifærið og óskum Snæfellingum til hamingju með sigur þeirra í karlaflokki, en fyrir stuttu unnu þeir frekar öruggan sigur á Njarðvíkingum, 84-79.