Leikur númer 2 hjá stelpunum í kvöld
Eftir glæsilegan sigur á laugardaginn halda Keflavíkurkonur í DHL-höllina í Vesturbænum til að mæta KR-ingum að nýju. Búast má við mikilli grimmd frá heimasætunum því ef KR tapar aftur er staðan erfið. Þær munu því berjast með kjafti og klóm fyrir sigri í kvöld.
Reikna má með því að KR stúlkur nýti skot sín betur á heimavelli, ekki síst Jessica Stomski, en henni voru mislagðar hendur gegn sterkri vörn Erlu og Önnu Maríu síðast.
Okkar stúlkur sáu í síðasta leik að ef vörnin er grimm þá koma alltaf auðveldar körfur inn á milli sem gerir allt einfaldara. En lykillinn að góðum leik í kvöld er ekki síst baráttan um fráköstin undir báðum körfunum. Eins myndi það hjálpa okkur ef hittnin utan að velli væri aðeins betri en síðast, því það losar um Erlu undir körfunni.
Stuðningsmenn stúlknanna munu eflaust mæta með keppnisskapið í Vesturbæinn því leikurinn í kvöld er gríðarlega mikilvægur. Annað hvort opnast einvígið upp á gátt eða þá að Keflavík nær að komast í vænlega stöðu. Mikil spenna framundan - ÁFRAM KEFLAVÍK!