Fréttir

Körfubolti | 9. desember 2004

Leikurinn á fibaeurope.com

Seinasti leikur í a riðli Bikarkeppni Evrópu fer fram núna í kvöld kl 20.30. Þá mætum við liði CAB Madeira í Portugal. Heimasíðan heyrði í strákunum í morgun og var hljóðið í þeim mjög gott. Leimenn þekkja aðstæður nokkuð vel enda var Madeira með okkur í riðli á síðasta ári líka. Leikurinn á heimavelli þeirra í fyrra var mjög spennandi og endaði með 1 stigs sigri Madeira. Madeira liðið er eins og áður hefur komið fram mikið breytt frá síðasta tímabili og margir nýjir leikmenn komnir til þeirra.  Keflavík vann heimaleikinn í ár á móti þeim 114-101 og fór Gunnar Einarsson á kostum í þeim leik. Með sigri í þessum leik trygjum við okkur annað sætið í riðlinum. Töpum við leiknum með minna en 13 stigum verðum við samt í 3 sæti. Töpum við leiknum með meira en 13 stigum endar Madeira í 2 sæti og við í 3 sæti.
Fiba hefur verið að setja í gang forrit í ár sem er til þess ætlað að samræma tölfræði á milli liða og það forrit hefur Keflavík ásamt öðrum liðum í Evrópukeppninni verðið að nota.  Forritið er nú komið í sitt endalega horf eftir endurbætur og þá er leikjum varpað beint á netinu. Inn á fiba.com er rautt LIVE merki við þá leiki sem eru í gangi. Með þessu forriti er hægt að fylgast með stigum, tíma, fráköstum osfrv. Þar er líka hægt að haka í nokkra glugga og fá fram stigahæstu menn, hver er með flest fráköst og villur hverju sinni. Sem sagt algjör snilld og færir körfuna á hærra plan.  Leik CAB Madeira og Reims var hægt að fylgast með á síðunni og er okkar von og mjög líklegt að það verði einnig hægt í kvöld. Ef ekki verður leiknum lýst beint hér á heimsíðunni.  Sem sagt allir inn á fibaeurope.com í kvöld kl 20.30.