Fréttir

Körfubolti | 15. desember 2003

Leikurinn á morgun gegn Ovarensse getur skorið úr um hver vinnur riðilinn

Nú eru eftir þrír leikir í B-riðli Vesturdeildarinnar, en þeir eru:

  • Ovarense - Keflavík
  • Madeira - Keflavík
  • Ovarense - Hyeres-Toulon

Leikirnir hafa flestir verið jafnir hingað til og enn er alls óvíst hvernig lokaröð í riðlinum verður, en efstu tvö sætin gefa sem kunnugt er heimavallarrétt í átta liða úrslitum, en þar er leikið uns annað liðið vinnur tvo leiki. Það sem nú er víst er þetta:

  • Aðeins Ovarense og Keflavík geta unnið riðilinn, en þó geta bæði enn lent í fyrsta, öðru eða þriðja sætinu
  • Toulon getur lent í öðru, þriðja eða fjórða sæti
  • Madeira endar annað hvort í þriðja eða fjórða og neðsta sætinu

Ef Keflvíkingum tekst að leggja portúgalska toppliðið Ovarense á morgun, þá tryggja þeir sér efsta sætið í riðlinum burtséð frá úrslitum í öðrum leikjum sem eftir eru.

Ef Keflavík vinnur Madeira en tapar gegn Ovarense þá lendir Keflavík aldrei neðar en í öðru sætinu.

Ef Keflavík tapar gegn Ovarense getur Keflavík enn lent í efsta sætinu ef þeir tapa með minna en 14 stigum og ef Keflavík vinnur Madeira og ef Toulon vinnur samtímis Ovarense (flókið, ekki satt?).

Ef Keflavík tapar báðum leikjunum þá geta þeir lent í öðru sætinu ef Ovarense vinnur Toulon, annars lendir Kef í þriðja.

Madeira getur híft sig upp í þriðja sætið með sigri á Keflavík ef Toulon tapar gegn Ovarense - þá yrðu Frakkarnir neðstir, liðið sem fyrirfram var álitið sterkast (!)

Soldið flókið allt saman, en að minnsta kosti er ljóst að við eigum möguleika á einu af tveimur efstu sætunum. Sjáum hvað setur . . . .