Leikurinn á sunnudag er leikur númer 150 milli Keflavíkur og Njarðvíkur! - smá söguskoðun
Þegar Keflavík og Njarðvík mætast þá er von á góðu. Þessi félög eru þau lang sigursælustu á landinu undanfarin 25 ár og hafa nánast einokað baráttuna um Íslandsmeistaratitilinn. Keflavík og Njarðvík hafa unnið fjóra síðustu Íslandstitla og reyndar 8 af síðustu 10 og 16 af síðustu 20. Þannig að ljóst er að þessi lið eru ávallt í fremstu röð. Síðustu sigrarnir voru á erlendri grundu, eins og menn muna, en Njarðvík vann Bakken Bears Cup í Árósum og Keflavík varð Norðurlandameistari félagsliða í Osló á dögunum.
Hér eru nokkrir punktar um þessa klassísku baráttu nágrannanna, en svo skemmtilega vill til að leikurinn á sunnudaginn er númer 150 milli þessara félaga.
Fyrsti leikurinn var árið 1979
- Fyrsti leikur milli Njarðvíkur og Keflavíkur fór fram 28. desember 1979 í hraðmóti á vegum KKÍ. Leikurinn fór fram í Njarðvík og sigruðu heimamenn 59-50.
- Meðal leikmanna voru hjá Njarðvík Gunnar Þorvarðarson, Jónas Jóhannesson, Brynjar Sigmundsson, Júlíus Valgeirsson og Valur Ingimundarson.
- Fyrir Keflavík léku m.a. Björn Víkingur Skúlason og Einar Steinsson, en einnig voru í liðinu nokkrir 17 ára guttar að stíga sín fyrstu spor með meistaraflokki, þeir Jón Kr Gíslason, Axel Nikulásson og Viðar Vignisson.
Fyrstu keppnistímabilin voru sveiflukennd
- Njarðvíkingar sigruðu í fyrstu tveimur leikjunum sem liðin kepptu
- Síðan sigruðu Keflvíkingar í næstu fimm viðureignum. Þetta var keppnistímabilið 1982-83 þegar Keflavík lék í fyrsta sinn í Úrvalsdeild.
- Keppnistímabilið 1985-86 sigruðu Njarðvíkingar í öllum sjö leikjunum sem liðin léku.
Fyrstu leikirnir í deild, bikar og úrslitum
- Fyrsta viðureign félagana á Íslandsmóti var háð haustið 1982 og vann Keflavík 98-84.
- Fyrsti bikarleikurinn milli Kef og Nja var einnig um haustið 1982 og sigruðu Keflvíkingar einnig þar, 106-97.
- Fyrst leikurinn í úrslitakeppni var vorið 1986 og sigruðu þá grannarnir úr Njarðvík með tveggja stiga mun, 75-73.
Stærstu sigrarnir voru 2001 og 2003
- Stærsti sigur Njarðvíkinga gegn Keflavík var 24. nóv 2001 í úrslitum Kjörísbikarsins, en leikurinn endaði með 40 stiga mun, 109-69.
- Stærsti sigur okkar manna var í úrslitakeppni, þann 23. mars 2003. Sigurinn var örlítið stærri 108-64, eða 44 stiga munur.
- Stærsti sigur okkar í Njarðvík var í sömu úrslitarimmu, 25 stig þann 28. mars 2003, en sá leikur endaði 80-105.
3-0 “sóp” til skiptis 2002 og 2003
- Tvö síðustu skiptin sem félögin hafa mæst í úrslitakeppni hefur munurinn verið óvenjulega mikill. Fyrst sópuðu Njarðvíkingar Keflavík 3-0 á leið sinni að Íslandsmeistaratitlinum árið 2002, en ári seinna hefndu geysisterkir Keflvíkingar ófaranna í undanúrslitum með þá Ed og Damon í fararbroddi. Keflavík vann þá 3-0 og síðan Grindavík 3-0 í úrslitum.
Keflavík hefur unnið átta af síðustu 10 leikjum!
- Njarðvíkingar byrjuðu fyrr að stunda körfubolta og vinna titla en Keflvíkingar. Eftir að Keflvíkingar komust á skrið hefur baráttan milli félaganna verið geysihörð, sú allra harðasta og besta í íslenskum körfubolta. En Keflavík hefur haft yfirhöndina á allra síðustu árum og hefur unnið átta af síðustu 10 leikjum, allt frá bikarleik þann 10. jan 2003.
Úrslit flokkuð eftir keppnum
- Úrslitakeppnin 33 leikir. Njarðvík 17 – Keflavík 16
- Íslandsmót: 58 leikir. Njarðvík 32– Keflavík 26
- Bikarkeppni KKÍ: 14 leikir. Njarðvík 9 – Keflavík 5
- Meistarakeppni KKÍ: 1 leikur: Njarðvík 1 – Keflavík 0
- Ýmis önnur mót: 43 leikir. Njarðvík 22 – Keflavík 21
Alls 149 leikir á tuttugu og tveimur árum
- Félögin hafa reynt með sér alls 149 sinni í hinum ýmsu keppnum frá árinu 1979 og fram til dagsins í dag. Njarðvíkingar hafa oftar haft betur, alls 81 sinnum (54%), en okkar menn hafa unnið 68 leiki (46%). Að meðaltali hafa úrslitin verið um það bil Njarðvík 86 – Keflavík 84. Ekki mikill munur á 22 árum og greinilegt að oftar en ekki hefur spennan verið allsráðandi. Af þessu má sjá að Njarðvíkingar hafa oftar haft betur en munirinn hefur minnkað á undanförnum árum. Aðeins einu sinni áður hafa félögin mæst í Meistarakeppni KKÍ, en það var árið 1999. Njarðvík vann 111-92 og var Purnell Perry þar í aðalhlutverki.