Leikurinn í kvöld
Leikurinn í dag fór frekar rólega af stað og hitnin var ekki góð. Stemmingin í húsinu var mjög róleg og stundum eins og það væri bara æfing í gangi. Greinilegt að áfhorfendur í Riga eru ekki mikið að æsa sig á leikjum. Húsið sem við spiluðum var samt nokkuð svipað Íþróttahúsinu í Njarðvík, nema með áhorendapöllum báðum megin.
Maður fékk þá tilfiningu í byrjun leiks að þetta væri lið sem við gætum vel unnið á útivelli. Riga liðið er frekar ungt lið, en 4. leikmenn eru í landsliði Lettlands. AJ byrjaði svipaði í þessum leik og hann endaði sá síðasta og skoraði fyrstu stigin. Lítið var skorað á fyrstu mínutum og staðan eftir fjórar mínutur 8-4 fyrir heimamenn og sóknin stirð. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 20-16 og Gunnar E. kominn með 3 villur. Þegar 2. min. voru eftir að fyrri háfleik var staðan 38-39, þá komu 6 stig í röð hjá þeim og staðan 45-39. Við náðum þó fínum kafla rétt fyrir hálfleik og staðan í hálfleik var 46-44. Við alls ekki spila eins og við gerum best og samt aðeins 2 stigum undir. Í seinni hálfleik jókst munurinn jafnt og þétt og Jonni og Sverir í villu vandræðum. Maður þarf eigilega að vera á staðun til að upplifa það sem maður hefur heyrt... Það er mikil heimadómgæsla í Evrópukeppninni. Sérstaklega féll annar dómari leiksins fyrir leikrænumtilþrifum leikmanns númer 10, Valters. Valters náði að fiska annsi margar villur á okkar menn. En leikurinn tapaðist 99-81 og því nokkuð ljóst að við verðum að taka hressilega á móti þeim í Sláturhúsin. Með góðri stemmingu er það góður möguleiki.
AJ spilaði vel í kvöld og það var greinileg að hann ætlaði sér að vinna þennan leik, reyndi kannski full mikið á tímabili. 17 fráköst segir ansi mikið. Maggi átti líka ágætan leik, en hittnin fyrir utan hefur samt oft verið betri. Zlatko sýndi lit og var miklu betri heldur en í Finnlandi þar sem hann átti mjög slæman leik. Aðrir leikmenn spiluðu langt undir getu og vonbrigði kvöldsins voru Adrian Henning. Sá leikmaður sýnir mikið á æfingum og í upphitun en finnur sig ekki nógu vel í leik liðsins. Það á vonandi eftir að koma hjá honum og vonandi á hann eftir sýna listir sínar í fyrsta heimaleik í Evrópukeppninni á fimmdaginn næsta.
Tölfræði leiksins.
AJ. Moye 31 stig, 17 fráköst
Magnús Þór 22 stig. 5 þrigga stiga.
Adrian Henning 11 stig
Zlatko 6 stig og 7 fráköst
Arnar Freyr 4 stig
Gunnar Stef. 3 stig
Jonni 2 stig
Sverrir 2 stig