Fréttir

Körfubolti | 26. október 2005

Leikurinn við Lappenranta

Eins og flestir vita var leikurinn sendur beint út hér á heimasíðu okkar og verður að segja það hafi gengið vel. Annað en hægt er að segja um leikinn sjálfan. Strax í byrjun vorum við að tapa boltanum í sókninni og vörnin mjög götótt. Reyndar var það þannig alla leikinn, sóknarleikurinn var mjög stirður og þeir skoruðu margar auðveldar körfur. Í fyrri hálfleik var Maggi eini sem var að setja hann og var kominn með 13 stig og þrjá þrista. AJ reyndi þó nokkuð en var annsi oft blokkeraður undir körfunni. Zlatko eitthvað smeikur að sjá og Henning lítið að gera.  Henning skoraði flest öll stigin sín úr troðslum og en að öðru leiti ekkert að gera. Í seinni hálfleik kom AJ sterkur inn var mjög góður. Ekki er ætlunin að eyða meira tíma í þennan leik, strákarnir fara yfir leikinn á spólu og læra af honum.  Nú er bara að byrja að hugsa um næsta leik sem verður við BK Riga í Rigaborg á föstudag.

Allt er annas gott að frétta af hópnum og allir heilir. 5 úr hópnum fer snemma í fyrramálið til Riga og restin svo seinnipartinn.

Hægt er að skoða leikinn undir liðnum Evrópukeppni hér til hliðar.

 Hér er tölfræði úr leiknum.

Hér er video úr leiknum.

Hér_eru_myndir_úr_leiknum.  ( Hér eru líka myndir frá ferðalaginu og myndir frá leiknum koma síðast.