Fréttir

Karfa: Konur | 16. september 2010

Lengjubikarinn hefst á föstudag

Keflavíkurstúlkur eiga sinn fyrsta leik á tímabilinu á föstudaginn næstkomandi (17. september), en þá eiga þær leik í Lengjubikarnum. Snæfellsstúlkur mæta í heimsókn og má búast við hörkuleik. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og eru allir stuðningsmenn hvattir til að mæta og styðja við bakið á stelpunum. Einnig verður hægt að skoða nýju aðstöðuna fyrir stuðningsmenn, þó hún sé eilítið hrá þessa stundina. En það mun allt saman komast í flott horf á næstu vikum.

Þess ber að geta að strákarnir eiga leik á sunnudaginn, gegn Hamar eða Tindastól, en það kemur í ljós fimmtudagskvöld. Sá leikur spilast einnig klukkan 19:15.

Áfram Keflavík!