Léttur sigur í fyrsta leik þegar Keflavík vann Tindastól 110-76
Flestir vita að Sauðkrækingar hafa átt í erfiðleikum með að koma liði sínu á koppinn í haust og segja verður að leikurinn í kvöld bar þess merki. Kanar ekki komnir til liðsins og leikur þess ekki jafn sterkur og verið hefur. Enda minntist Sigurður þjálfari þess ekki að hafa haft jafn auðveldan sigur á Króknum í háa herrans tíð. Keflvíkingar tóku strax forystu á vellinum án þess þó að gera miklar rósir í fyrri hálfleik, en að honum loknum var staðan 34-44 fyrir Keflavík. Í þriðja leikhluta jókst munurinn og í þeim fjórða settu Keflvíkingar í fluggírinn og unnu að lokum leikinn með 34ra stiga mun 110-76. Fjórða leikhluta lauk 40-21 fyrir Kef.
Halldór átti ágætan leik (17st, 10 fr), en auk hans voru þeir Maggi (17 st), Gunni (17) og Jonni (14) iðnir við stigaskorun. Annars verður liðið ekki metið af þessum leik, til þess var mótspyrnan of lítil. En Stólarnir eiga eflaust eftir að eflast þegar líður á veturinn.
Úrslit í leikjum kvöldsins voru ekki endilega eftir bókinni, ef svo má segja. Til dæmis verður að telja sigur Fjölnismanna á Haukum "upset" eins og sagt er á slæmri íslensku, og einnig komu hinir "nýliðarnir", Skallagrímur, frekar á óvart með sigri sínum á nýbökuðum Reykjavíkurmeisturum ÍR. Njarðvík fór létt með KFÍ og KR vann útisigur á Hamri, en þeir hafa ekki sótt marga sigra þangað austur á undanförnum árum.