Lewis skaut Grindavík inn í úrslitin
Flott stemming var í Röstinni í gærkvöldi, húsið fullt af Grindjánum og Króksurum sem mættir voru til að fylgjast með spennandi oddaleik. En ekkert varð af því, Darryl Lewis setti á svið “einkashow” og sýndi hreint ótrúlega takta. Hann skoraði 45 stig í öllum regnbogans litum, með þristum, tvistum og einni svaka troðslu, þegar hann gerði sér lítið fyrir og hamraði boltann í smettið á Andropov sem er um 20 sentimetrum hærri.
Kiddi gerði sitt til að halda Stólunum á floti auk þess sem Andropov átti góða byrjun. En Lewis lék sér að Cook eins og köttur að mús og það var hreinlega munurinn á liðunum. Kaninn hjá Grindavík skoraði um 30 stigum meira en Kaninn hjá Stólunum en leiknum lauk einmitt með um 30 stiga sigri Grindjána. Auk stiganna hirti Lewis 17 fráköst og átti 6 stoðsendingar. Hreint magnaður leikur hjá frábærum leikmanni. Það verður gaman að sjá Keflavíkurvörnina eiga við hann, en það hefur ekki gengið sem best hingaði til.
Kiddi og Stólarnir geta borið höfuðið hátt eftir frækilega framgöngu, þeir unnu fjóra af átta leikjum í úrslitakeppninni, þrátt fyrir að einungis þrír hafi verið á heimavelli.
Nú er komið að sjálfum úrslitunum og það er viðeigandi að þar mætist tvö bestu lið vetrarins, Deildarmeistar Grindavíkur gegn Bikar- og Kjörísmeisturum Keflavíkur. Frábær skemmtun í vændum!