Fréttir

Körfubolti | 25. október 2005

Liðið mætt til Finnlands

Eftir töluverða erfiðleika í dag eru leikmenn liðsins og þjálfari komnir uppá hótel í Lappeenranta í Finnlandi.  Fararstjórar, aðstoðarþjálfari og sjúkraþjálfari eru rétt ókomnir upp á hótel áðan þegar heyrðist í okkar mönnum.

Seinkun á flugi frá Keflavík til Kaupmannahafnar gerði það að verkum að liðið missti af vélinni til Helsinki en það náðist að bjarga deginum fyrir horn með þeirri næstu sem fór frá Kaupmannahöfn. 

Nú er bara að vona að strákarnir nái góðri hvíld í nótt og mæti tilbúnir í leikinn á morgun.  Leikurinn hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma.

Farið verður betur yfir ferðasöguna síðar.