Fréttir

Körfubolti | 2. október 2004

Liðin borin saman fyrir morgundaginn

Keflavík og Njarðvík eru ný lið á gömlum merg, ef svo má að orði komast. Bæði lið hafa skipt um Kana en eru að öðru leyti óbreytt að mestu. Skoðum það nánar.

Leikstjórnendur

  • Þarna hafa Njarðvíkingar nælt sér í nýjan mann, Sayman, sem þykir góður. Hann er hávaxinn fyrir sína stöðu, 1,92, og getur því séð völlinn vel. Hann var góður á mótinu í Danmörku og skoraði m.a. 19 stig í úrslitaleiknum. Til vara í þessari stöðu eru þeir Brenton Birmingham og Ólafur Aron Ingvason.
  • Keflvíkingar eru einnig vel mannaðir hér. Arnar Freyr tók gífurlegum framförum í fyrra og er orðinn landsliðsmaður, hann er snöggur og leikinn, skæður bæði í vörn og sókn. Til vara eru þrautreyndir menn, þeir Hjörtur Harðar og Sverrir Þór, báðir afar sterkir leikmenn, hvor á sinn hátt. Síðan hefur Magnús Gunnarsson æ oftar brugðið sér í þetta hlutverk og nýtur sín prýðilega þar sem hann býr yfir mikilli tækni og framúrskarandi leikskilningi.

Skotbakverðir

  • Hér hefur Kef líklega forskot með þá Magnús Gunnarsson og Gunnar Einarsson í fararbroddi. Til vara eru fínar skyttur, t.d. Gunnar Stefánsson, Davíð Jónsson og Halldór Halldórsson. Keflavík hefur alltaf haft góðar skyttur og engin breyting virðist vera á því núna.
  • Njarðvíkingar hafa Brenton og honum til aðstoðar Guðmund Jónsson, sem stundum hefur hitt vel á móti Keflavík. Jóhann Ólafsson er ungur og efnilegur og gæti komið sterkur inn.

Litlir framherjar (þristar)

  • Bæði lið vel mönnuð. Njarðvík hefur hér Pál Kristinsson sem er alltaf sérlega duglegur og fljótur upp og niður völlinn. Hann bregður sér einng í hlutverk fjarkans og er fjölhæfur. Þegar Páll er í stuði, þá getur hann hitt vel af 3ja metra færi og hefur oft reynst Keflvíkingum skæður. Til vara er hér Brenton, en hann er þeim eiginleikum gæddur að geta leikið flest allar stöður.
  • Keflavík hefur Jonna sem er í svaka formi. Hann og Páll eru að mörgu leyti ekki ósvipaðir leikmenn, grannir, fljótir, duglegir í vörn og sókn, báðir hafa mikinn stökkkraft. Jonni er að vísu lítillega meiddur og óvíst um þátttöku hans í leiknum. Til vara í þessari stöðu eru Halldór (sem getur verið tvistur, þristur eða fjarki), Gunnar Einarsson og Sverrir Þór. Gunnar er flestum mönnum sterkari og reynist oft vel undir körfum, bæði í vörn og sókn.

Kraftframherjar (fjarkar)

  • Hér mætast Kanarnir. Njarðvík hefur Troy Wiley sem kannski er erfitt að skilgreina sem fjarka, því hann tekur rmikið af skotum fyrir utan, jafnvel fyrir utan þriggja stiga línu. Hann getur í sjálfur sér verið þristur, fjarki og fimma. Hann er hæfileikaríkur og hoppar hátt. Kannski helst spurning um það hvernig karakter hann er og hvernig hann bregst við mótlæti. Til vara eru hér jaxlar eins og Halldór Karlsson sem kemur oft grimmur inn af bekknum.
  • Kefarar hafa reyndar tvo fjarka, ef svo má segja. Anthony Glover er þristur-fjarki sem býr yfir miklum styrk og fjölhæfni. Hann getur skotið, drævað og póstað upp. Svaka player. Jimmy Miggins hefur verið meiddur í heilt ár, en þótti ótrúlegur leikmaður fyrir rúmu ári síðan. Hann hefur enn ekki náð sér alveg, en sýndi í Danmörku á dögunum að hann getur verið ansi skæður, ekki síst með bakið í körfuna, en þannig er hann ill-stöðvanlegur.

Miðherjar

  • Hér má segja að Njarðvík hafi forskot, þar sem Keflavík hefur í raun ekki eiginlegan miðherja. Friðrik Stefánsson, landsliðsmiðherjinn, hefur fest sig í sessi sem öflugur liðsmaður, sérstaklega í vörn, þar sem hann er sterkur og duglegur. Sóknarlega er Friðrik engin maskína, en hann getur sett 15 stig og haldið mönnum við efnið. Á eftir Friðriki kemur efnilegasti miðherji landsins, Egill Jónasarson, en hann getur verið illkleyfur múr í vörninni. Til vara hér koma Wiley, Palli og Dóri.
  • Enginn ekta miðherji er í Keflavíkurliðinu, heldur skipta Kanarnir með sér þessu hlutverki og þeim til aðstoðar eru Jonni og Halldór.

Þjálfarar

  • Samanburður hér er ekki sanngjarn þar sem annars vegar er nýliði í efstu deild og hins vegar sigursælasti þjálfari landsins í seinni tíð. Einar Árni á eftir að læra mikið, en hann hefur náð prýðilegum árangri með yngri flokka og eflaust verður hann fljótur að nema.
  • Siggi hefur unnið alla titla, oftar en einu sinni, og þekkir úrslitaleiki og íslenskan körfubolta betur en aðrir. Metnaðurinn er mikill og hann mun leggja hart að sínum mönnum að standa sig.

Breiddin

  • Oft er rætt um breidd í körfubolta, en yfirleitt er ekki skilgreint hvað átt er við. Njarðvík og Keflavík hafa bæði góða breidd í byrjunarliði sínu, sem þýðir að allir sem byrja inná eru góðir og geta tekið þátt í sóknarleiknum. Einnig hafa bæði liðin góða fyrstu skiptimenn og liðið veikist ekki strax við að missa byrjunarliðsmenn út af. Meiri breidd er ekki nauðsynleg í stökum leikjum sem þessum, þó 10-12 manna breidd geti hjálpað til í langri keppni.

Spáin

  • Eins og sjá má, er ekki mikill munur á liðunum. Njarðvíkurliðið er hávaxnara en Keflavíkurliðið hefur betri skyttur og reyndari þjálfara. Bæði lið geta keyrt upp hraðann og ættu einnig að vera klár í alvöru slagsmálaleik. Það sem enn er óvitað er hversu vel nýju Kanarnir falla inn í liðin, því þeir skipta töluverðu máli fyrir árangur liðanna.
  • Spá heimasíðunnar er að leikurinn verði frábær baráttuleikur tveggja bestu liða landsins. Úrslitin munu ráðst í lokin, við spáum okkar mönnum 2ja stiga sigri, 93-91.