Fréttir

Körfubolti | 31. ágúst 2005

Liðstyrkur frá Njarðvík

Þær Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir og Margrét Kara Sturludóttir hafa ákveðið að færa sig yfir í Keflavík úr Njarðvík.  Báðar þykja þær vera mjög efnilegar og hafa spilað með yngri landsliðum Íslands. Ingibjörg er  17 ára framherji , 173 cm. á hæð og Margrét er 16 ára framherji, 174 cm. á hæð. Félagsskiptin koma í kjölfar þess að Njarðvík verður ekki með lið í 1. deild kvenna í ár.  umfn.is

Stjórn kkd. Keflavíkur býður þeir velkomnar og ekki nokkur spurning að þær eiga eftir að blómstra í liði Íslandsmeistara síðustu þriggja ára.

 

                    

Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir                                                                 Margrét Kara Sturludóttir  ( Myndir af umfn.is)