Litið inn á æfingu hjá stelpunum
Heimasíðan leit inn á æfingu hjá meistaraflokki kvenna í gær. Greinilegt er að æfingarnar er komnar á fullt skrið og vel tekið á því. Leikmannahópurinn er þéttur eins og undanfarin ár og markmiðin skýr, að verja titilinn sem verið hefur í Keflavík síðustu 3 ár. Litlar breytingar verða á hópnum frá síðasta tímabili, þó ekki sé útilokað að einhver bætist í hópinn. María Ben er úti í Bosníu að spila með 18 ára landsliðinu og hefur hún verið að spila mjög vel. Var m.a stigahæst í sætum sigri á móti Úkraínu, skoraði 20 stig og tók 10 fráköst.
Leitin að erlendum leikmanni eru á lokastigi og von á að sami verði við leikmann á næstu vikum. Fyrsti kosturinn var að semja við Alex Stewart sem lék með þeim við mjög góðan orðstír seinni hluta síðasta tímabils. Alex hafði mikinn áhuga á að koma aftur, en gat ekki komið af persónulegum ástæðum.
Stelpurnar sveitar eftir hafa tekið vel því hjá Sverri Þór þjálfara í gær.