Lítið um varnir þegar Keflavík vann vængbrotið lið KR 100-91 í Vesturbænum í kvöld
Hraðinn var töluverður í leiknum í kvöld og mikið gert af mistökum, sem dæmi má nefna að liðin töpuðu boltanum alls 48 sinnum samtals (!) og þar höfðu okkar menn "vinninginn", með 25 slíka. En okkar menn hittu einnig betur utan 3ja stiga línunnar, settu 13 af 25 sem er 52% nýting (KR setti 2 af 17 sem er 12% hittni). Þessi 3ja stiga hittni okkar gerði gæfumuninn í annars slökum leik, þar sem litlar sem engar varnir voru leiknar. Hjörtur Harðarson sýndi flotta takta, eitthvað sem hann mætti gera oftar, og negldi niður 7 þristum í aðeins 10 skotum. Hann gerði 23 stig og var besti maður liðsins í kvöld.
Keflvíkingar léku vörnina framarlega mest allan tíman í kvöld, en grimmdin var ekki nægjanleg til að varnaraðferðin væri að virka. Áberandi var hversu seinir okkar menn voru aftur og fengu KR-ingar því ansi mörg óáreitt opin skot undir körfunum, skoruðu örugglega 10-15 stig þannig. Reyndar var ágætis barátta í KR-liðinu sem var Kanalaust.
Leikurinn byrjaði hratt og mistökin hrönnuðust upp, töluvert einbeitingarleysi í gangi. En þristarnir fóru að detta og við náðum fljótt forskoti sem hélst allan leikinn. Í hálfleik var munurinn 6 stig, 48-54 og í upphafi seinni hálfleiks kom "góði kaflinn" hjá Keflavík sem dugði til að gera út um leikinn. Vörninn small saman í nokkrar mínútur, með Sverri Þór í fararbroddi og Keflavík náði mest 17 stiga forskoti, 57-74. Eftir það hættu menn að leika vörn aftur og KR saxaði á forskotið, þó aldrei hafi sigurinn verið í hættu.
Sem fyrr segir átti Hjörtur frábæran leik, sérstaklega í sókninni og Sverrir var öflugur í vörninni. Hann var þó mistækur í sókninni en náði samt að gefa 9 stoðsendingar sem er verulega gott. Nick (21 stig) og Derrick (23) voru ágætir en hafa oft verið grimmari í fráköstunum. Fannar átti góða troðslu en var annars ekki áberandi, setti þó 9 stig. Jonni virkaði mjög sprækur í fyrri hálfleik, en meiddist lítillega í þeim seinni og lék lítið. Magnús lék mjög vel þótt hann hafi oft skoraði meira, hann átti solid leik og virðist vera að finna formið að nýju. Gunnar Einarsson var ekki áberandi í sínum 500. leik og nafni hans Stefánsson náði ekki að setja mark sitt á leikinn. Arnar Freyr átti ágæta spretti en gerði töluvert af mistökum eins og aðrir í kvöld.
Heilt yfir var leikurinn slakur en öflugur varnarleikur í 5 mínútur ásamt góðri 3ja stiga nýtingu var nóg til að landa öruggum sigri. Nú er 3ja sætið í sjónmáli og fróðlegt verður að sjá hverjir mótherjar okkar í fyrstu umferðinni í úrslitakeppninni verða, þar getur ýmislegt enn gerst. Eins og staðan er í dag verður það Tindastóll, en Haukar og KR gætu einnig lent í 6. sætinu.
Næsti leikur er á mánudaginn gegn Þór frá Þorlákshöfn. Þeir róa nú lífróður um veru sína í deildinni og verða líklega að vinna tvo síðustu leikina ætli þeir að bjarga sér frá falli. Þórsarar hafa verið að sækja í sig veðrið upp á síðkastið og munu eflaust veita okkur góða mótspyrnu á mánudaginn.