Fréttir

Körfubolti | 5. mars 2003

Lítil mótstaða þegar KEF-KARLAR lögðu Breiðablik í Smáranum 78-93

Stundum hefur gengi Keflavíkurkarla verið brösótt í Smáranum, enda íþróttahúsið afar stórt og oft verulega tómlegt. Ekkert slíkt var uppi á teningnum á sunnudaginn var, enda Keflavík í ágætis formi um þessar mundir. Reyndar var leikurinn ekki mikið fyrir augað, til þess var munurinn á liðunum einfaldlega of mikill. Blikarnir voru vondaufir um sigur frá upphafi og virtust strax sætta sig við að tapa. Keflavíkurpiltar gengu á lagið og náðu strax öruggri forystu sem fór upp í 30 stig og niður í 10 stig í fjórða leikhluta. Niðurstaðan var 15 stiga sigur – skylduverkefni, ef svo má segja.

Damon er greinilega kominn í fantaform og átti hann enn einn stórleikinn, jafnvel þótt hann væri ekki á fullum dampi allan leikinn. Hann skoraði 35 stig og hafði ekki mikið fyrir því. Eddi var einnig sprækur, sérstaklega í fráköstunum og aðrir gerðu sitt. Reyndar var sóknarleikurinn frekar slakur og einbeitingin lítil í augum Keflavíkurpilta. Það kom þó ekki að sök í þetta skiptið þar sem mótstaðan var lítil.

Nú er aðeins einn leikur eftir í Intersport-deildinni, gegn Snæfelli á fimmtudaginn kl. 19.15.