Fréttir

Körfubolti | 16. júlí 2005

Litlar breytingar hjá meistaraflokkum

Æfingar hafa staðið yfir í sumar hjá meistaraflokki karla og kvenna. Leikmannahópar liðana hafa í gegnum árin lítið breyst á milli tímabila og engin breyting verður á þetta tímabilið. Stjórnin og þjálfarar liðana hafa kappkostað við að semja við okkar leikmenn enda liðin bæði Íslandsmeistarar síðustu þriggja ára.

Í meistaraflokki karla kemur inn nýr strákur, Þröstur L. Jóhannson. Þröstur kemur upp úr yngri flokka starfi Keflavíkur og þykir einn efnilegsti leikmaður landsins í dag. Þröstur hefur leikið 19 leiki með drengja- og unglingalandsliðum Íslands og gaman verður að að fylgast með honum í framtíðinni. Ekki er en ljóst með Sverrir Þór Sverrisson og Sævar Sævarsson. Sverrir gefur okkur svar í byrjun september. Zlatko Goceski ( slatti ) kemur til liðsins í byrjun september. Einnig kemur til liðsins bandarískur leikmaður, en sú leit stendur yfir og eru nokkrir í sigtinu.

Sverrir Þór Sverrisson mun þjálfa stelpurnar áfram enda náði hann mjög góðum árangri með þær á sínu fyrsta tímabili sem þjálfari. Þær munu allar leika áfram með Keflavík á næsta tímabili. Marín Rós sem var frá vegna meiðsla síðasta tímabil, hefur náð sér og kemur inn í hópinn að nýju. Keflavík mun að öllum líkindum leika með erlendan leikmann og muna þau mál skýrast á næstu dögum.

Leikmannahópur eða æfingahópur hjá meistaraflokk karla lítur annas svona út í dag:

Arnar Freyr Jónsson, Davíð Jónsson, Gunnar Einarsson, Elentínus Margeirsson, Gunnar Stefánsson, Halldór Halldórsson, Jón N. Hafsteinsonn, Jón Gauti Jónsson, Magnús Þór Gunnarson, Þröstur Jóhannson,  Zlatko ( kemur í sept.)