Lokahóf Keflavíkur er á fimmtudaginn
Samkvæmt venju verður haldið lokahóf á vegum körfuknattleiksdeildarinnar til að setja formlegan punkt aftan við þessa leiktíð. Lokahófið verður haldið í KK-salnum að Vesturbraut á fimmtudagskvöld og opnar húsið kl. 19.30.
Dagskráin er hefðbundin og hefst kl. 20.00 með mexíkósku hlaðborði. Að því loknu taka við leikir og skemmtiatriði, auk þess sem upp verða rifjuð skemmtileg atriði þessarar viðburðaríku leiktíðar. Hermann Helgason mun sjá um skemmtilegan leik, Óli stendur fyrir röra-happdrætti og boðnir verða upp Íslandsmeistaraboltar karla og kvenna. Stórsveitin Breiðbandið mun stíga á stokk og flytja gleðivísur af körfuboltamönnum og öðrum Keflvíkingum. Að lokum verða veittar viðurkenningar til leikmanna. Þær viðurkenningar sem verða veittar eru (til leikmanna mfl. karla og kvenna)
- mestu framfarir
- besti varnarmaðurinn
- besti leikmaðurinn
Það skal tekið fram að valið er ákaflega erfitt í þetta skiptið þar sem liðið var mjög jafnt heilt yfir eins og menn vita. Einnig verður "lið ársins" valið, en það samanstendur af fimm körlum og konum. Auk þess verður tilkynnt um val á starfsmanni ársins, en eins og allir vita eru ansi margir sem starfa af miklum heilindum fyrir körfuknattleiksdeildina.
Miðasala stendur yfir og geta áhugasamir haft samband við Særúnu í síma 896-6299. Hyggilegt gæti verið að panta miða sem fyrst því húsrúm er takmarkað. Miðinn kostar 2.000 kr.