Lokahóf Keflavíkur í kvöld
Keflvíkingar halda lokahóf sitt í kvöld í félagsheimili Keflavíkur í Toyotahöllinni. Dagskrá kvöldsins verður með hefðbundnu sniði en auk verðlaunaafhendingar verða sýnd atriði frá meistaraflokkum félagsins ásamt því að Valdimar Guðmundsson og Björgvin Ívar Baldursson munu leika nokkur lög.
Að loknu borðhaldi, eða kl. 22.00, verður húsið opnað fyrir aðra gesti en boðsgesti og hvetjum við stuðningsmenn Keflavíkur til að kíkja við til að samfagna með núverandi Íslands- og bikarmeisturum kvenna og stappa stálið í leikmenn karlaliðsins sem eru þegar farnir að huga að næsta tímabili.