Lokahóf yngri flokka á fimmtudag kl. 18.00
Lokahóf yngri flokka fer fram í TM höllinni fimmtudaginn 28. maí kl. 18.00. Þar verða iðkendum veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur og iðjusemi á leiktíðinni sem nú er að enda, auk þess sem farið verður yfir tímabilið í heild sinni og það starf sem unnið hefur verið í vetur. "Grillararnir" verða á sínum stað og allir gestir og gangandi pulsaðir á alla kanta samkvæmt venju.
ALLIR iðkendur eru hvattir til að fjölmenna og FORELDRAR og aðrir áhugasamir aðstandendur eru MEIRA en rúmlega VELKOMNIR.
Hófinu lýkur um kl.18.50.