Fréttir

Karfa: Unglingaráð | 12. maí 2011

Lokahóf yngri flokka í dag fimmtudaginn12 maí

Lokahóf yngri flokka fer fram í Toyota höllinni í dag, fimmtudaginn 12. maí kl. 18.00.  Þar verða iðkendum veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur og iðjusemi á leiktíðinni sem nú er að enda, auk þess sem farið verður yfir tímabilið í heild sinni og það starf sem unnið hefur verið í vetur. "Grillararnir" verða á sínum stað og allir fá Pulsur & Pepsi eins og þeir geta í sig látið. ALLIR iðkendur eru hvattir til að fjölmenna og FORELDRAR og aðrir áhugasamir eru að sjálfsögðu MEIRA en VELKOMNIR

Barna- og unglingaráð Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.