Lokahóf yngri flokka í dag kl. 18.00
Lokahóf yngri flokka fer fram í Toyota höllinni í dag, fimmtudaginn 10. maí kl. 18.00. Þar verða iðkendum veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur og iðjusemi á leiktíðinni sem nú er að enda, auk þess sem farið verður yfir tímabilið í heild sinni og það starf sem unnið hefur verið í vetur. "Grillararnir" verða á sínum stað og allir fá Pulsur & Pepsi eins og þeir geta í sig látið. ALLIR iðkendur eru hvattir til að fjölmenna og FORELDRAR og aðrir áhugasamir eru að sjálfsögðu MEIRA en VELKOMNIR.
Hófinu lýkur um kl.18.50.
Barna- og unglingaráð Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.