Fréttir

Karfa: Unglingaráð | 15. maí 2010

Lokahóf yngri flokka verður 20. maí

Lokahóf yngri flokka fer fram í Toyota höllinni  fimmtudaginn 20. maí kl. 18.00.  Þar verða iðkendum veittar viðurkenningar fyrir tímabilið auk þess sem farið verður yfir tímabilið og það starf sem farið hefur fram í vetur.  Grillin verða á sínum stað og allir fá Pulsur & Pepsi eins og þeir geta í sig látið.  Allir iðkendur eru hvattir til að fjölmenna og foreldrar og aðrir áhugasamir eru að sjálfsögðu meira en velkomnir. 

Unglingaráð Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.