Lokaleikur í IE Deild Karla á morgun!
Lokaleikurinn í Iceland Express deild karla verður háður í Toyota Höllinni á morgun klukkan 19:15. Andstæðingar Keflavíkur eru Hamarsmenn, en fyrri leik liðanna á leiktíðinni endaði með 74-103 sigri Keflavíkur. Það er nauðsynlegt fyrir Keflavík að landa sigri í þessum leik til þess að geta haldið 2. sætinu í deildinni, en Grindavík og KR eru að bítast um deildarmeistaratitilinn. Nú viljum við fylla húsið á morgun og látið orðið berast í Keflavík!
Áfram Keflavík!