Loksins, loksins heimaleikur í Domino´s deild karla - Grillin tendruð
Keflvíkingar eiga loksins heimaleik í Domino´s deild karla í körfubolta á morgun, fimmtudag, þegar liðið mætir Þór frá Þorlákshöfn í TM-Höllinni. Leikurinn hefst kl. 19.15 og má búast við hörkuleik enda bæði liðin ósigruð það sem af er móti, Keflvíkingar eftir fjóra leiki en Þór eftir þrjá leiki.
Grillin verða tendruð rúmlega 18.00 og verða hamborgarar, kartöfluflögur og gos á boðstólnum fyrir aðeins 1000 kr. Eru stuðningsmenn beggja liða að sjálfsögðu hvattir til að fylla tóman maga fyrir leik!