Lykilmenn fá hvíld
Eins og menn vita þá er leikið í Hópbílabikarnum á sunnudagskvöld. Þrjár breytingar hafa verið gerðar á liði okkar manna fyrir leikinn. Falur, Gunnar Einars og Magnús hvíla þennan leik og í þeirra stað koma inn í hópinn Sævar Sævarsson, Gunnar Stefánsson og Halldór Halldórsson. Þetta verður vonandi mikilvæg hvíld fyrir þessa lykilmenn liðsins, enda er "prógram" næstu vikna ansi þungt.