Madeira vann góðan útisigur gegn Bakken, 65-62
"Allir geta unnið alla" er orðatiltæki sem á vel við í Evrópuriðli Keflavíkur um þessar mundir. Bakken Bears, dönsku meistararnir frá Árósum, unnu Madeira í hörkuleik á Madeira fyrir skömmu en í kvöld snerist taflið við þegar Madeiringar komu í heimsókn. Óvenju lítið var skorað í leiknum og í háflleik var staðan 28-25 fyrir heimamenn. Annar leikhluti fór 9-9 (!). Í seinni hálfleik héldu Danirnir naumu forskoti og þegar fjórði hófst var staðan 46-44. En þá komust Portúgalarnir yfir, unnu síðasta fjórðunginn 21-16 og leikinn 65-62. Þessi úrslit þýða að enn er allt galopið og Keflavík getur ennþá lent í fyrsta, öðru, þriðja eða fjórða sætinu, svo ótrúlegt sem það hljómar!
Staðan í riðlinum er nú þessi:
Félag........leikir....unnið....tapað.....stig....stigamunur
Keflavík.......4.........3........1........7.............+ 44
Madeira.......4.........2........2........6.............- 13
Bakken........4.........2........2........6.............- 20
Reims..........4..........1........3........5..............- 9
Athygli vekur að Keflavík er eina liðið með jákvæðan stigamun sem mun hljálpa okkur ef liðin verða jöfn.