Maggi "Gun" með gegn Snæfell á morgun!
Það verður heljarinnar veisla í Toyota Höllinni á morgun, en þá mæta Snæfellsmenn í heimsókn. Þetta er fyrsti leikur liðanna á heimavelli Keflavíkur eftir skelfilega útreið Keflvíkinga í oddaleik úrslitakeppninnar 2009-2010 sem flestir vilja gleyma.
Óhætt er að segja að mikið vatn hafi runnið til sjávar síðan, en Keflvíkingar hafa verið að styrkja hópinn mikið undanfarna 2 mánuði. Nú síðast er Maggi "Gun" mættur aftur á heimaslóðir frá Njarðvík. Keflvíkingar fagna komu hans mikið og gaman verður að sjá hvort að hann hafi nokkuð gleymt hvar þriggja stiga línan liggur. Mikill áhugi er fyrir leiknum og einnig hvort Maggi verði með sína eðalþrista eins og forðum daga. Hvetjum fólk til að mæta snemma og láta þessa veislu ekki fram hjá sér fara.
Leikurinn hefst kl. 19:15!
Magnús Þór Gunnarsson spilaði síðast með Keflavík tímabilið 2007-2008.