Maggi Gunn. í viðtali
Stórskyttan Magnús Þór Gunnarson er næstur í smá viðtal hjá okkur hér á heimasíðunni. Maggi Gunn. eins og hann er oft kallaður hefur verið að spila vel í vetur og þar á meðal í Evrópukeppninni þar sem hann er með 16 stig að meðaltali leik.
Hvernig lýst þér að leikinn á móti Madeira á fimmtudag?
Bara mjög vel,eins mig minnir þá höfum við ekki tapað fyrir þeim á
heimavelli og byrjum ekki á því núna.
Er undirbúningur fyrir Evrópuleiki að einhverju leiti öðruvísi en fyrir aðra
leiki?
Já við förum allir til mömmu í pasta eins og venjulega fyrir stórleiki
eins og þennann
Nú eru þið að fara til Madeira í þriðja skiptið í næstu viku. Hvernig er að
spila þar?
Það er ekkert spes litið hús og ekki gott að spila þar
Hvernig lýst þér á þá nýung hjá kki að vera með leik á milli jóla og nýárs?
Alveg asnalegt maður verður nú að fá smá frí
Hvað finnst þér um deildina í ár? Er hún betri eða svipuð og í fyrra?
Mér finnst hún ekki eins góð og í fyrra
Nú hefur leikjaplanið verið strangt í vetur, hefur það komið niður á leik
liðsins?
Já og nei menn eru pínu þreyttir en það á ekki að skipta máli því það á
alltaf að vera gaman að spila.Því fleiri leikir færri æfingar:)
Er einhver leikur fyrir þér meira eftirminnanlegur en aðrir?
Ætli ég segi ekki bara síðasti leikur á móti á móti snæfelli fyrra því í leiknum á
undan skoraði ég ekki stig en kom svo og skellti svo 29 í grillið á þeim:)
Mannstu hvað þú hefur skorað mest í einum leik, og hvað er metið þitt í
þriggja stiga körfum í einum leik?
32 í meistaraflokki eru það 8 stykki en annars er það 12
Hvaða lið verða sterkust í deildinni í vetur?
KEFLAVÍK og njarðvík
Fylgistu mikið með NBA, hvaða lið er þitt uppáhals og hvaða leikmaður?
Já pínu þegar maður nennir en mitt lið er MIAMI HEAT og besti leikmaðurinn
í deildinni er Dwayne Wade A.K.A The flash
Af því að það styttist í jólin verð eg að koma með eina spurningu tengda
jólunum. Hvað verður í jólamatinn á þínu heimili?
Það er svínahamborgahryggur ala mamma best í heimi:)